Dúkkuverksmiðjan

  1. home
  2. Books
  3. Dúkkuverksmiðjan

Dúkkuverksmiðjan

4.17 186 27
Share:

Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta...

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Kobo

More Details

Stína og Grímur láta drauminn rætast og opna veitingastað í afskekktum firði fyrir vestan. Brátt er Dúkkuverksmiðjan orðin hjarta Salteyrar og það eina sem skyggir á gleðina er barnleysið. Þegar dóttirin langþráða loksins birtist reynir hún mjög á ástríka foreldrana, enda er stúlkan eins og lítill hvirfilbylur; eirðarlaus, uppátækjasöm og þjökuð af martröðum.

Milla litla og Reynir besti vinur hennar vaxa úr grasi í öruggum faðmi þorpsins umkringd himinháum fjöllum og óblíðum náttúruöflum. Samband þeirra er afar náið en þegar þau stálpast kemst ástin í spilið og flækir málin svo um munar. En úr fjarlægð fylgist dularfullur maður með Millu og lúrir á leyndarmáli sem mun umturna öllu.

Júlía Margrét Einarsdóttir er sögumaður af guðs náð, í senn smellin og einstaklega næm á mannfólkið í öllum sínum breyskleika. Í þessari þriðju skáldsögu sinni færir hún okkur heilt þorp – segir sögu íbúanna á hlýlegan og nostalgískan hátt án þess að gefa nokkurn afslátt af stóru spurningunum um ástina, lífið og dauðann.

Dúkkuverksmiðjan er þriðja skáldsaga höfundar.

  • Format:Paperback
  • Pages: pages
  • Publication:2025
  • Publisher:Forlagið
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:997935304X
  • ISBN13:9789979353041
  • kindle Asin:997935304X

About Author

Júlía Margrét Einarsdóttir

Júlía Margrét Einarsdóttir

4.11 504 56
View All Books