Símon segir

  1. home
  2. Books
  3. Símon segir

Símon segir

3.60 45 2
Share:

Eldur logar í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Í rústunum finnst lík og fær rannsóknalögregluteymið Bergþóra og Jakob málið í sínar...

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Kobo

More Details

Eldur logar í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Í rústunum finnst lík og fær rannsóknalögregluteymið Bergþóra og Jakob málið í sínar hendur. Málið leiðir Bergþóru djúpt inn í dimman heim fíknar og kúgunar þar sem Hallur, barnsfaðir dóttur hennar, er sokkinn í skuldafen og glæpamaðurinn Símon hefur fast tak á honum.

Fastur milli steins og sleggju sekkur Hallur sífellt dýpra í undirheima. Á sama tíma tekst Bergþóra á við eigin vandamál. Hún er staðráðin í að sanna sig eftir tímabundinn brottrekstur úr starfi og er tilbúin að leggja mikið á sig til að afhjúpa sannleikann. Saman feta þau Jakob sig í átt að lausn gátunnar - vonandi áður en það er um seinan.

Símon segir er spennandi glæpasaga um nauðung og sekt, stjórnleysi og myrkrið í hjarta mannsins - sem og þann óvænta styrk sem þar leynist þegar á reynir. Þetta er fjórða bók Önnu Margrétar Sigurðardóttur um Bergþóru og Jakob, en áður hafa komið út Hringferðin, Örvænting og Öskrið.

  • Format:Audiobook
  • Pages: pages
  • Publication:2025
  • Publisher:
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:9180689701
  • ISBN13:9789180689700
  • kindle Asin:9180689701

About Author

Anna Margrét Sigurðardóttir

Anna Margrét Sigurðardóttir

3.49 309 15
View All Books