Duldýrasafnið

  1. home
  2. Books
  3. Duldýrasafnið

Duldýrasafnið

4.57 7 0
Share:

Í Duldýrasafninu skyggnumst við inn í veröld sem fæstir hafa augum litið. Þar tekur á móti okkur furðulegur félagsskapur duldýranna....

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Kobo

More Details

Í Duldýrasafninu skyggnumst við inn í veröld sem fæstir hafa augum litið. Þar tekur á móti okkur furðulegur félagsskapur duldýranna. Finngálknið, blendingur manns og dýrs, öllum vargi skaðlegri. Krákinn, hinn risavaxni kolkrabbi sem nærist á frystitogurum og flutningaskipum. Lyngbakurinn, ódauðlegt klækjahveli sem flotið hefur um heimsins höf í gervi eylands frá upphafi tímans. Trygglynd dagtröll og mannskæð nátttröll sem þvælast um fáfarna vegi og fjarlæga fjallasali. Dvergarnir og álfarnir sem búa í holtum og hæðum. Tilberar, galdrasendingar, mórar og huldulandið Tröllbotnaland. Öll þessi furðufyrirbæri og fleiri til, efnisgerast á síðum Duldýrasafnins. Með hverri mynd fylgir texti sem er tekin beint úr sögnum og sjónlýsingum sem gefur innsýn inn í óravíddir ímyndunaraflsins á liðnum öldum. Lýsingarnar bregða upp mynd af menningunni og mannlífinu sem framkallaði verurnar, fóstraði þær og hélt í þeim lífinu fram á okkar daga.

  • Format:Hardcover
  • Pages:76 pages
  • Publication:2014
  • Publisher:Arngrímur Sigurðsson
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:9979727179
  • ISBN13:9789979727170
  • kindle Asin:9979727179

About Author

Arngrímur Sigurðsson

Arngrímur Sigurðsson

4.00 84 16
View All Books