Svo veistu að þú varst ekki hér – hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi
Greinasafnið Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi er fyrsta íslenska fræðiritið á sviði...
Also Available in:
- Amazon
- Audible
- Barnes & Noble
- AbeBooks
- Kobo
More Details
Greinasafnið Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi er fyrsta íslenska fræðiritið á sviði hinsegin sögu og er óhætt að segja að bókin sé tímamótaverk í íslenskri sagnfræði.
Hún inniheldur sex ritrýndar greinar sem eru fjölbreyttar að efni. Í þeim er fjallað um hinsegin sagnfræði sem fræðilega nálgun á söguna, þýðingar og viðtökur á ljóðum Saffóar á Íslandi, málaferlin gegn Guðmundi Sigurjónssyni sem var dæmdur í fangelsi fyrir „kynvillu“ árið 1924, orðræðu um „listakynvillinga“ á Laugavegi 11 og samkynhneigð sem birtingarmynd hins illa á sjötta áratugnum, sögu og hlutverk bókasafns Samtakanna ´78 og ímynd Íslands sem hinsegin paradísar.
Ritstjórar greinasafnsins eru Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger, en auk þeirra eiga greinar í bókinni Kristín Svava Tómasdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Þorvaldur Kristinsson.
- Format:Paperback
- Pages:286 pages
- Publication:2017
- Publisher:Sögufélag
- Edition:
- Language:isl
- ISBN10:
- ISBN13:9789935466150
- kindle Asin:9935466159









