Guð leitar að Salóme

  1. home
  2. Books
  3. Guð leitar að Salóme

Guð leitar að Salóme

4.05 188 24
Share:

Salóme týnir kettinum sínum rétt fyrir jólin og í örvæntingarfullri leit sinni venur hún komur sínar á Kringlukrána. Hún sest við...

Also Available in:

  • Amazon
  • Audible
  • Barnes & Noble
  • AbeBooks
  • Kobo

More Details

Salóme týnir kettinum sínum rétt fyrir jólin og í örvæntingarfullri leit sinni venur hún komur sínar á Kringlukrána. Hún sest við barinn og skrifar bréf þar sem hún opinberar sig í fyrsta sinn. Bréfin eru stíluð á hina dularfullu Helgu sem vann með Salóme í versluninni Betra lífi tíu árum fyrr. Með lifandi frásagnargleði afhjúpar hún sjálfa sig og leitar skilnings á fjölskyldusögunni, ástinni og sálarstríði ungrar konu í grátbroslegum smábæjarharmleik þriggja ættliða á Akranesi. Við sögu koma spákona í Fossvogi, drykkfelldur organisti og auðvitað örlagavaldurinn Helga. Hér er á ferðinni martraðarkennd uppvaxtar- og ástarsaga úr rammíslenskum veruleika.

Júlía Margrét Einarsdóttir er með MA gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands og MFA gráðu í handritagerð frá New York Film Academy. Hún hefur áður sent frá sér nóvellu og ljóðabók og sló eftirminnilega í gegn með sinni fyrstu skáldsögu, Drottningunni á Júpíter (2018). Samhliða skrifum starfar Júlía við menningarblaðamennsku og dagskrárgerð.

  • Format:Paperback
  • Pages:388 pages
  • Publication:2021
  • Publisher:Una útgáfuhús
  • Edition:
  • Language:isl
  • ISBN10:9935955397
  • ISBN13:9789935955395
  • kindle Asin:9935955397

About Author

Júlía Margrét Einarsdóttir

Júlía Margrét Einarsdóttir

4.11 504 56
View All Books